weakestlink

← Öll námskeið

Örlexía · tekur yfirleitt 2–3 mínútur

AI-svik & djúpfölsun

Þegar málið er fullkomið og röddin hljómar eins og yfirmaðurinn — en það er falsað.

Fjarfundurinn sem var falskur

Árið 2024 sat starfsmaður hjá verkfræðistofunni Arup á fjarfundi með fjármálastjóra sínum og nokkrum samstarfsmönnum — og millifærði á eftir um 180 milljónir króna. Allt leit út fyrir að vera ekta. En hann var eina raunverulega manneskjan á fundinum: restin voru AI-búnar afritanir. Svikarar nota nú AI til að skrifa gallalaus tölvupóst, klóna raddir og falsa heilu fjarfundina.

Nýjar leikreglur

  • Fullkomið mál er ekki lengur sönnun — stafsetningar- og málvillur hverfa með AI.
  • Rödd eða myndband getur verið falsað, jafnvel þótt það hljómi/líti út fyrir að vera ekta.
  • Þrýstingurinn er sá sami: flýtir, leynd, peningar.

Gallalaust mál — er það þá ekta?

Nei. AI skrifar fullkomna íslensku án einnar einustu villu, svo að „finndu stafsetningarvilluna“ dugar ekki lengur. Skoðaðu þess í stað netfang sendanda (hér firmma-bokhald.com með tveimur m-um) og sjálfa beiðnina — ekki málfarið.

Gerðu þetta

staðfestu alltaf óvenjulegar beiðnir í gegnum þekkta leið (hringdu til baka í númer sem þú þekkir sjálf/ur). Semjið jafnvel um leynilegt öryggisorð í teyminu fyrir hraðgreiðslur — orð sem aðeins þið þekkið.

Mundu

Treystu ferlinu, ekki röddinni — staðfestu í gegnum leið sem þú velur sjálf/ur.

Rannsóknir sýna

AI-skrifaður veiðipóstur (phishing) nær nú ~54% smellihlutfalli — á pari við mannlega sérfræðinga og mun ódýrari í framleiðslu. „Finndu stafsetningarvilluna“ dugar ekki lengur; það sem dugar er endurhringing í númer sem þú þekkir sjálf/ur.

Heiding o.fl., Harvard 2024 · Arup-málið, Fortune/CNN 2024.

Spurning 1 af 3

Á fjarfundi biður „framkvæmdastjórinn“ um hraðgreiðslu. Rödd og andlit líta alveg út fyrir að vera ekta. Hvað gerir þú?

Spurning 2 af 3

Tölvupóstur frá „starfsmannasviði“ er á fullkominni íslensku með réttu merki og nafni yfirmanns þíns. Hvað ræður því hvort þú getur treyst honum?

Spurning 3 af 3

Rödd í símanum hljómar nákvæmlega eins og yfirmaður þinn og biður um millifærslu. Hvað verndar best?

Vel gert!

Þú hefur klárað eitt af grunnnámskeiðunum — sem allir fá frítt.

Með ókeypis innskráningu:

  • Stigin þín, framvindan og skírteinið þitt eru vistuð.
  • Þú færð námskeið sniðin að þínu hlutverki — ekki bara grunnnámskeiðin.
  • Við sendum þjálfunina akkúrat þegar þú þarft á henni að halda — til dæmis sem eftirfylgni við phishing-prófun.